Fara í efni

Willtir Westfirðir tilnefndir til Edduverðlaunanna 2007

Fréttir

Heimildaþættirnir Willtir Westfirðir í leikstjórn Kára Schram er tilnefndir til Edduverðlaunanna 2007 í flokknum Frétta og/eða viðtalsþáttur ársins. Meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar munu kjósa vinningshafa úr hópi tilnefndra. Edduverðlaunin verða afhent þann 11. nóvember næstkomandi á Hilton Nordica Reykjavík og verður sjónvarpað beint frá athöfninni á RÚV.

Soffía Gústafsdóttir verkefnastjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða á Patreksfirði fer með stórt hlutverk í þáttunum auk þess þess að vera frumkvöðullinn að gerð þeirra. Þættirnir eru tveir eru og fjalla um villta náttúru Vestfjarða, mannlíf, menningu og matargerð undir berum himni. Þeir voru sýndir á RÚV í sumar.