Málþing um samgöngumál á Vestfjörðum, breytt tímasetning
Fjórðungssamband Vestfirðinga boðar til málþings um samgöngumál á Vestfjörðum, föstudaginn 21. júní kl 12.30–15.00 í Íþróttahúsinu Tálknafirði. Frummælendur eru Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, Albertína Fr. Elíasdóttir formaður FV, Sigurður Pétursson formaður samgöngunefndar FV, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir oddviti Tálknafjarðarhrepps og Guðbrandur Sverrisson Kaldrananeshreppi. Fundarstjóri er Indriði Indriðason, sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps. Málþingið er opið öllum sem áhuga hafa á málefninu.
18. júní 2013