11. mars 2025
Störf í boði
Vélfræðingur - Vélvirki
Í boði er áhugavert starfsumhverfi með krefjandi og fjölbreyttum verkefnum hjá traustu fyrirtæki.
Starfsmaðurinn verður hluti af vinnuflokki veitusviðs Orkubús Vestfjarða með starfstöð á Patreksfirði. Starfsumhverfi er sunnanverðir Vestfirðir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur og nýframkvæmdir á veitusviði.
- Rekstur og viðhald á varaflsvélum og öðrum vélbúnaði.
- Reglubundið viðhald og eftirlit hitaveitukerfi.
- Bakvaktir.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í vélfræði.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur.
- Almenn tölvufærni.