Mannamót Markaðsstofa landshlutanna voru haldin með pompi og prakt 16. janúar síðastliðinn í Kórnum í Kópavogi. Ferðasýningin var í ár haldin í ellefta sinn og hefur hún vaxið og dafnað með hverju árinu. Það hefur margt breyst frá fyrstu Mannamótunum sem haldin voru í flugskýli á Reykjavíkurflugvelli og er hún í dag stærsta ferðasýningin á Íslandi. Að þessu sinni, sem áður reyndar, var múgur og margmenni í Kórnum þar sem tæplega 1600 skráðir sýnendur og gestir komu saman og reiknast okkur til að aldrei hafi fleiri verið á Mannamótum.
Á vestfirska ganginum voru 17 sýnendur alls staðar að af kjálkanum. 20 fyrirtæki skráðu sig í upphafi en þrír sýnendur forfölluðust og hafa aldrei fleiri skráð sig til leiks, sem fyrir okkur er vísbending um að ferðaþjónar skynji vel virði þess að taka þátt í Mannamótum. Vestfirsku sýnendurnir drógu upp góða mynd af þeirri fjölbreyttu flóru ferðaþjónustu sem er í fjórðungnum. Þau sem tóku þátt eru:
- Fantastic Fjords
- Wakeboarding Iceland
- Holt Inn
- Byggðasafn Vestfjarða
- Gistihúsið við höfnina
- Westfjords Adventures
- Vesturferðir
- Sauðfjársetrið á Ströndum
- Sjóferðir
- Vesturbyggð
- Borea Adventures
- Kómedíuleikhúsið
- Hótel Djúpavík
- ATV Ísafjörður
- Eysteinseyri
- Galdur Brugghús
Mannamót eru búin að skapa sér sess sem gríðarmikilvægur vettvangur innan ferðaþjónustu á Íslandi, viðburður þar sem allir í ferðaþjónustunni koma saman. Til að auka ávinning Mannamótanna og nýta tækifærið sem felst í því að allir komi í efninu saman, á sama stað á landakortinu, var fyrir nokkrum árum ákveðið að blása til Ferðaþjónustuviku dagana fyrir Mannamótin. Að Ferðaþjónustuvikunni koma auk Markaðsstofa landshlutanna, Ferðamálastofa, SAF, Íslandsstofa og Ferðaklasinn. Dagskráin í ferðaþjónustuvikunni var glæsileg og þar boðið upp á fjölbreytta viðburði. Í þetta sinn var það: Nýársmálstofa ferðaþjónustunnar, markaðssamtal ferðaþjónustunnar, MICELAND kynningarvettvangur, Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu, ferðatæknimót og fræðsla um hvað við vitum um slys í ferðaþjónustu. Hápunktur ferðaþjónustuvikunnar er svo ávallt hin stórskemmtilegu Mannamót.