Fara í efni

Af MERSE er þetta helst

Fréttir MERSE
MERSE-hópurinn kom í heimsókn í fyrravetur og heimsótti meðal annars Netagerðina á Ísafirði.
MERSE-hópurinn kom í heimsókn í fyrravetur og heimsótti meðal annars Netagerðina á Ísafirði.

Vestfjarðastofa tekur þátt í NPA-verkefninu MERSE Verkefnið leggur áherslu á samfélagslega nýsköpun í dreifðum byggðum og er Ísland í samstarfi við Svíþjóð, Írland, Finnland og Noreg. Verkefnið hófst árið 2023 og stendur fram á mitt næsta ár. Vinnan fram til þessa hefur að mestu snúist um gagnaöflum, sem fól meðal annars í sér greiningu á þekkingargrunni innan landanna fimm og kortlagningu samfélagslegrar nýsköpunar í þeim.

Netráðstefna MERSE

Í síðasta mánuði var haldin netráðstefna á vegum MERSE undir yfirskriftinni:
„What is needed to make it easier to start and develop sustainable social enterprises in rural areas?“ sem myndi á íslensku útleggjast sem „Hvers er þörf til að auðvelda stofnun og þróun sjálfbærra samfélagslegra fyrirtækja í dreifbýli? Ráðstefnan var vel sótt og góðra upplýsinga aflað. Dagskráin innihélt meðal annars kynningu á MERSE-verkefninu og niðurstöður þeirrar vinnu sem þegar hefur verið framkvæmd. Þá voru áhugaverð erindi frá Dr. Lucas Olmedo sem sagði frá rannsóknum sínum á tengslum dreifbýlis og samfélagslegrar nýsköpunar, Tiia Muotkavaara sem sagði frá samfélagsverkefni sínu í Lapplandi og Ia Poikulainen frá ARVO, sem veitir stuðning við samfélagsfrumkvöðla í Finnlandi. Þá fjallaði Jon Söder um það hvernig sveitarfélagið Östersund veitir stuðning við samfélagslega nýsköpun. Að erindum loknum var farið í netvinnuherbergi sem skipt var eftir löndum og var lagt upp með að svara spurningunni í titli ráðstefnunnar.

Ráðstefnan er aðgengileg á netinu og má horfa á hana hér

Það sem vinnan á vegum MERSE hefur helst leitt í ljós til þessa er:

  • Gögn um samfélagslega nýsköpun eru ónákvæm og stuðningskerfi ólík milli landa.
  • Skortur er á fjármögnunarmöguleikum fyrir verkefni og fyrirtæki á sviði samfélagslegrar nýsköpunar.
  • Rannsóknir hafa aðallega beinst að skilgreiningu samfélagslegrar nýsköpunar en vantar dýpri greiningu á forsendum, árangursríkum verkefnum og viðskiptamódelum.

Meðal þess sem gert var til að kortleggja stöðuna var að framkvæma könnun meðal samfélagsfrumkvöðla í þátttökulöndunum og sýna niðurstöður að meirihluti fyrirtækja er eldri en 10 ára, og 72% þeirra eru rekin af konum. Meðalaldur eigenda er 52 ár og meðalfjöldi starfsmanna er fimm. Framlegð fyrirtækjanna er lægri en hjá hefðbundnum fyrirtækjum, og hagnaður oftast endurfjárfestur í fyrirtækinu sjálfu. Helstu áskoranir sem samfélagsfrumkvöðlarnir standa frammi fyrir eru ónóg fjármögnun, skortur á sýnileika og erfiðleikar við að ná til markhópa.

NPA-verkefni

MERSE er samstarfsverkefni innan Norðurslóðaáætlunarinnar (NPA; Northern Periphery and Arctic Programme) sem er samstarfsvettvangur Evrópusambandsríkjanna Írlands, Svíþjóðar og Finnlands og svo Noregs, Íslands, Grænlands og Færeyja. Markmið Norðurslóðaáætlunar 2021-2027 er að stuðla að samstarfsverkefnum sem miða að því að finna lausnir á sameiginlegum viðfangsefnum samstarfslandanna, stuðla að sjálfbærri þróun og nýsköpun í norðlægum og dreifðum byggðum Evrópu. Oft er talað um verkefni sem styrkt eru af áætluninni sem NPA-verkefni.

Hér á Vestfjarðastofu hafa orðið breytingar á MERSE en Steinunn Ása Sigurðardóttir hefur tekið við verkefnisstjórn af Þórkötlu Soffíu Ólafsdóttur sem lét af störfum í lok síðasta árs. Með henni í verkefninu er Anna Sigríður Ólafsdóttir.