Út er komin ársskýrsla starfshóps um afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum. Skýrslan var kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar 21. desember sl. af Steingrími J. Sigfússyni atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra. Starfshópurinn var settur á laggirnar samkvæmt samþykkt ríkisstjórnarfundar á Ísafirði þann 5. apríl 2011. Hlutverk hópsins er að fylgja eftir markmiðum stjórnvalda um aukið afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum. Skýrsluna er að finna á vef stjórnarráðsins.
Telja verður mikilvægt að þessi skýrsla komi nú fram og sé innlegg í umræðu um þá stöðu sem kom upp í óveðrinu í lok síðasta árs. Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga mun á fundi sínum í dag 7. janúar taka til umræðu þetta alvarlega mál og kalla eftir viðbrögðum stjórnvalda um aðgerðir til lengri og skemmri tíma litið.