Fara í efni

Akureyri Energy Seminar: Sustainable Solutions for Remote Areas

Fréttir

RECET verkefnið sem Vestfjarðastofa er þátttakandi í og Net Zero Island Network standa fyrir sameiginlegri málstofu í Hofi á Akureyri, þar sem sérfræðingar, stefnumótendur og hagsmunaaðilar koma saman til að ræða og stuðla að orkuskiptum á eyjum og í dreifðum byggðum.

Dagskráin samanstendur af framsöguerindum og umræðum sem miða að því að styðja við sjálfbæra þróun og grænna samfélag og er einstakt tækifæri til að miðla þekkingu, skoða nýjar lausnir og efla tengslanet.

Boðið verður uppá léttar veitingar í lok ráðstefnu!

Ókeypis er á ráðstefnuna en vegna takmarkaðs sætafjölda og til að halda utan um veitingar er skráninga óskað hér. 

Um RECET:

RECET (Rural Europe for the Clean Energy Transition) er samstarfsverkefni fimm landa og tuga sveitarfélaga um alla Evrópu, með Ísland í fararbroddi. Verkefnið miðar að því að efla getu sveitarfélaga í dreifðum byggðum í Evrópu og atvinnulífsins til að takast á við orkuskipti og smíða orkuskiptaáætlanir fyrir svæðin. RECET er styrkt af LIFE styrktaráætlun Evrópusambandsins sem leggur áherslu á umhverfis- og loftslagsmál.

Um Net Zero Islands Network:

Net Zero Islands Network gegnir lykilhlutverki í þróun grænna og sjálfbærra orkulausna fyrir eyjar og afskekkt svæði. Markmið netsins er meðal annars að auðvelda miðlun þekkingar milli eyja og afskekktra svæða, skapa fleiri atvinnutækifæri og kanna möguleika á kolefnisneikvæðum lausnum. Norræna orkurannsóknarstofnunin (Nordic Energy Research) hefur umsjón með verkefninu.

Dagskráin fer fram á ensku og er eftirfarandi:

Opening Session: Setting the Stage for Energy Transition

13:00 – 13:05 Welcome Address
Ásthildur Sturludóttir, Mayor of Akureyri

13:05 – 13:25 Keynote: Policy & Vision for a Sustainable Future

Learning from Best Practices: Success Stories Across Europe

13:25 – 13:40 The Samsø Experience: A Renewable Energy Success Story
Samsø Energy Academy

13:40 – 13:50 The Net Zero Islands Network
Ditte Stiler, Adviser, Nordic Energy Research

13:50 – 14:05 Rural Europe for the Clean Energy Transition (RECET): Key Takeaways from Partners Across Europe
Marianne Ribes, Project Manager, Icelandic New Energy

Policy & Market Forces: Addressing the Challenges of Energy Transition

14:05 – 14:25 The Green Energy Transition of Iceland & National Transport Priorities.
Sigurður Friðleifsson, Head of Division, Icelandic Environment and Energy Agency

14:25 – 14:40 Impact of Oil Tax in Transport on Rural Communities
Skúli Gunnar Árnason, Head of Energy Transition, Eimur


14:40 – 15:00 | Coffee Break

Local & Regional Energy Transition Strategies

15:00 – 15:15 Development and Sustainability Agenda for Åland.
Yvonne Østerlund, Senior Engineer, Government of Åland

15:15 - 15:30 CET PLAN: A Regional Approach to Sustainable Energy Planning in Blekinge.
Anna Månsson, Project Manager, Energy Agency Southern Sweden

15:30 – 15:45 Across Energy Sector Policies of Scottish Local Authorities.
Daniel Gear, Director, Equitable Energy Research CIC

15:45 – 16:00 Developing a Roadmap for Nunavut, Canada.
Michael Ross, Industrial Research Chair of Northern Energy Innovation, Yukon University

Panel Discussion: Dissemination & Knowledge Sharing

16:00 – 16:30 | Panelists:

  • Ditte Stiler, Adviser, Nordic Energy Research

  • Sigurður Friðleifsson, Icelandic Environment and Energy Agency

  • Samsø Energy Academy

  • Carlos Tapia, Nordregio

Moderator: Ottó Elíasson, Managing Director at Eimur

16:30 - Closing Remarks and Mingling

RECET & Net Zero Islands Network offer guests light refreshments after the seminar

Skoða á viðburðardagatali