Fara í efni

Ályktun FV um framkvæmdir við Vestfjarðaveg

Fréttir
Yfirlitsmynd af veglínum - af vef Vegagerðarinnar
Yfirlitsmynd af veglínum - af vef Vegagerðarinnar

Á fundi stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga í Þróunarsetrinu Skor á Patreksfirði þann 20. september var rætt um vegagerð í Gufudalssveit og tekið til umræðu erindi Skipulagsstofnunar frá 9. september: „Ákvörðun um tillögu að matsáætlun Vestfjarðavegar 60 milli Bjarkalundar og Melaness.“ Skipulagsstofnun var þar að svara erindi Vegagerðarinnar frá 4. júlí um tillögu að matsáætlun fyrir Vestfjarðarveg með nýrri útfærslu veglína. Í svari Skipulagsstofnunar kemur fram að stofnunin fellst ekki á tillögu Vegagerðarinnar, en setur jafnframt fram leiðbeiningar um málsmeðferð. Vegagerðin ákvað síðan þann 18. september að kæra niðurstöðu Skipulagsstofnunar til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

 

Stjórn Fjórðungssamband Vestfjarða samþykkti eftirfarandi ályktun:

 

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga beinir því til stjórnvalda að ljúka án frekari tafa undirbúningi og ákvarðanatöku, svo hægt sé að hefja lagningu nýs láglendisvegar um Gufudalssveit (Vestfjarðavegur 60). Stjórn Fjórðungssambandsins telur í þeim efnum, algjörlega óásættanlegt að tefja málið með því að kæra það til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þessi framkvæmd er grundvallaratriði fyrir öryggi vegfarenda og eflingu byggðar á Vestfjörðum og má ekki dragast meira en þegar er raunin.

 

Sú óvissa sem uppi hefur verið um framkvæmdina síðustu árin er óþolandi, rétt eins og sú staðreynd að Vestfirðingar njóta enn ekki þeirra sjálfsögðu réttinda að byggðir séu tengdar saman og við hringveginn með nútímalegum heilsársvegum. Það er krafa Vestfirðinga að það muni ekki bitna á öðrum nauðsynlegum samgönguverkefnum á Vestfjörðum, ef verkefnið verður kostnaðarsamara en að hefur verið stefnt hingað til.