16. október 2007
Fréttir
Impra hefur auglýst hefur eftir styrkumsóknum til Átaks til atvinnusköpunar og er umsóknarfrestur til 3. nóvember. Það er Iðnaðarráðuneytið sem veitir þessa styrki og á síðustu árum hafa mörg verkefni sem tengjast menningartengdri ferðaþjónustu víða um land fengið styrki úr þessum sjóði. Verkefni sem eru á fyrstu stigum nýsköpunar og munu skapa störf eiga mesta möguleika á styrkjum, en þeir geta mest verið 50% af heildarkostnaði við verkefni. Menningarráð Vestfjarða hvetur Vestfirðinga sem eru að hefja verkefni sem leiða munu til atvinnusköpunar til að sækja um, en allar nánari upplýsingar má finna undir þessum tengli.