Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarverkefna á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Fjórðungssamband Vestfirðinga. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum.
Áherslur við fyrri úthlutun 2011
Hægt er að sækja um stuðning við hverskyns menningarverkefni, svo framarlega að umsókn eða verkefni stangist ekki á við úthlutunarreglur sem samþykktar eru við hverja úthlutun. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við fyrri úthlutun ársins 2011 verði horft sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
# Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á Vestfjörðum.
# Verkefni sem stuðla að nýsköpun og fjölbreytni í menningartengdum verkefnum.
# Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar.
# Menningarstarfsemi sem styður við ferðaþjónustu.
# Verkefni sem stuðla að þátttöku barna og unglinga í listsköpun og menningarstarfi.
Umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 14. apríl. Úthlutun fer fram í maí. Fyrirvari er gerður um undirritun nýs menningarsamnings milli ríkisvaldins og Fjórðungssambands Vestfirðinga fyrir þann tíma.
Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Vestfjarða á viðeigandi eyðublöðum eða í gegnum umsóknarform hér á vefnum undir tenglinum Styrkir. Umsækjendur eru eindregið hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur Menningarráðs á sama stað.
Allar nánari upplýsingar veitir Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891-7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is.