Hér með er auglýst eftir styrkumsóknum vegna fyrri úthlutunar Menningarráðs Vestfjarða árið 2010. Bent er sérstaklega á nánari upplýsingar í úthlutunarreglum sem samþykktar hafa verið fyrir þessa úthlutun, en þær er að finna undir tenglinum Styrkir hér til hægri. Einnig gefur menningarfulltrúi Vestfjarða allar nánari upplýsingar í s. 891-7372 eða menning@vestfirdir.is.
Samkvæmt ákvörðun stjórnar Menningarráðs Vestfjarða verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur við fyrri úthlutun ársins 2010:
a. Eflingu samstarfs á sviði menningarmála á svæðinu
b. Nýsköpun í verkefnum tengdum menningu
c. Fjölgun atvinnutækifæra í tengslum við menningarstarf á svæðinu
d. Eflingu menningartengdrar ferðaþjónustu og ferðatengdrar menningarstarfsemi
Umsóknarfrestur er til sunnudagsins 28. mars 2010.