Fara í efni

Embla Dögg verkefnastjóri Brothættra byggða í Reykhólahreppi

Fréttir

Embla Dögg Bachmann hefur verið ráðin sem verkefnastjóri Brothættra byggða í Reykhólahreppi. Verkefnið er til 5 ára og er hluti af samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Vestfjarðastofu og Reykhólahrepps. Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á Reykhólum. Starfið var auglýst laust til umsóknar í lok nóvembermánaðar og bárust fimm umsóknir.

Embla stundar nám í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum. Hún sat í sveitarstjórn Reykhólahrepps síðasta kjörtímabil, sá um Reykhóladaga á liðnu sumri og var kosningastjóri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í nýafstöðnum Alþingiskosningum.

Embla á rætur að rekja til Reykhóla og hefur búið þar undanfarin ár. Embla Dögg kemur til starfa hjá Vestfjarðastofu í febrúar og við hlökkum til samstarfsins og bjóðum hana velkomna í hópinn.