Næstkomandi föstudag og laugardag verður haldið Fjórðungsþing Vestfirðinga í Frímúrarasalnum á Ísafirði. Á þinginu kemur sveitarstjórnarfólk saman og ræðir um sameiginleg málefni okkar Vestfirðinga.
Á föstudeginum verða vinnustofur og málefnin sem þar verða rædd eru „Vestfjarðastofa til framtíðar”, „Vestfirðir til framtíðar” og „Samstarf fyrir íbúana”. Ályktanir um hagsmunamál Vestfirðinga verða kynntar, ræddar og að lokum lagðar fram til samþykktar fyrir þingið sem er grunnurinn að stefnumótun fyrir fjórðunginn og vinnuna framundan til eflingar vestfirskra samfélaga.
Þingfulltrúum verður boðið á kynningu í Vestrahúsinu á þeim stofnunum og fyrirtækjum sem í húsinu starfa.
Góðir gestir munu koma og flytja erindi á þinginu og má þar nefna Val Rafn Halldórsson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Björn Ingimarsson sveitastjóri Múlaþings sem ræðir um sameiningar sveitafélaga, Fjólu Maríu Ágústsdóttur sem ræðir um samstarf sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu, Önnu Guðmundu Ingvarsdóttur frá HMS og fjallar um húsnæðissjálfseignarstofnun landsbyggðanna og að lokum mun Sævar Kristinsson frá KPMG kynna skýrslu um „Samfélagsleg áhrif jarðgangna á Vestfjörðum”.
Málstofa dagsins hefur yfirskriftina „velferð íbúa” en það er spennandi áskorun að tryggja velferð allra íbúa á dreyfbýlasta svæði landsins og mun innviðauppbygging gegna þar stóru hlutverki. Það verður því í nógu að snúast á Fjórðungsþingi Vestfirðinga.
DAGSKRÁ
Föstudagurinn 22. október
10:30 Setning þings - Kosning þingforseta, ritara og tilnefning fundarstjóra í vinnustofum.
10:40 Ávarp formanns Fjórðungssambands- Jóhanna Ösp Einarsdóttir
10:50 Ávörp gesta
Valur Rafn Halldórsson - Samband Íslenskra sveitarfélaga
11:25 Ályktanir um helstu hagsmunamál Vestfirðinga og stefnumótun sveitarfélaganna í einstaka málum.
11.50 Hádegishlé
12.00 Hádegismatur og kynning á starfsemi í Vestrahús.
14.00 Málstofa Velferð íbúa
- Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings - Sameining sveitarfélaganna fjögurra í Múlaþing – Aðdragandi, markmið og raun
- Fjóla María Ágústsdóttir - Leiðtogi stafræns umbreytingarteymis hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga- Hvernig nýtist samstarf sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu velferð íbúa
- Anna Guðmunda Ingvarsdóttir,Aðstoðarforstjóri HMS - Húsnæðissjálfseignarstofnun landsbyggðanna
- Sævar Kristinsson,Verkefnisstjóri KPMG - Samfélagsleg áhrif jarðgangna á Vestfjörðum
15.10 Kaffihlé
15.30 Vinnustofur
- Tillögur til Vestfjarðastofu - Vestfjarðastofa til framtíðar
- Tillögur til stjórnvalda – Vestfirðir til framtíðar
- Tillögur til sveitarfélaganna – Samstarf fyrir íbúana
16.30 Kynning á afurð vinnustofa
17.00 Þinghlé
19.30 Kvöldverður á Hótel Ísafirði
Laugardagur 23. október
9:00 Þing sett að nýju
Nefndarstörf - Umræður og afgreiðsla ályktana
10:00 Skýrsla samgöngu- og fjarskiptanefndar
10:15 Skýrsla um framkvæmd og stöðu Sóknaráætlunar Vestfjarða
10.30 Hlé.
10.40 Fjárhags- og starfsáætlun 2022
Laun og þóknun til stjórna og nefnda
Ákvörðun um árstillag sveitarfélaganna á næsta starfsári
Fjárhags- og starfsáætlun Fjórðungssambands Vestfirðinga
11.45 Hádegishlé
12.30 Tillaga um breytingu á samþykktum og þingsköpum
13.30 Önnur mál
14.00 Þingslit
*Þeir dagskrárliðir sem eru skráð með skáletu letri eru samkvæmt samþykktum Fjórðungssambands Vestfirðinga