Fara í efni

Frestur til að sækja í Barnamenningarsjóð að renna út

Fréttir
Tónlistarlíf er í blóma á Vestfjörðum
Tónlistarlíf er í blóma á Vestfjörðum

Þann 15. október rennur út frestur til að sækja um styrk úr Barnamenningarsjóði þetta árið. Meginhlutverk sjóðsins sem er í vörslu Menntamálaráðuneytisins er að styrkja verkefni á sviði barnamenningar. Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku barna. Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 15. október 2007. Umsóknareyðublöð fást hjá menntamálaráðuneytinu og á vef ráðuneytisins.