HAFSJÓR AF HUGMYNDUM nýsköpunarkeppni sjávarútvegsklasa Vestfjarða auk styrkja til háskólanema á framhaldsstigi.
Þetta er einstakt tækifæri til að hrinda góðum hugmyndum í framkvæmd og fá til þess styrk og aðstöðu hjá vestfirskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Megin markmiðið er að efla sjávarútveg á Vestfjörðum og koma með ferskar hugmyndir inn í þessa rótgrónu atvinnugrein.
Vestfirsk sjávarútvegsfyrirtæki vilja nú sem fyrr vera í fararbroddi í framleiðslu á sjávarfangi. Þau vita hversu mikilvægt er að vera fyrstur með nýjungar og auka verðmæti alls sjávarfangs sem kemur að landi sem og ónýttum auðlindum sjávar. Það er liður í sjálfbærni fyrirtækjanna að búa yfir nýjustu þekkingu, hæfileikaríku starfsfólki og skapa aukin verðmæti fyrir þá auðlind sem þau hafa fengið umboð til að nýta.
Markmiðið með nýsköpunarkeppninni er að:
- Auka nýsköpun.
- Hvetja starfandi fyrirtæki, frumkvöðla og nema til nýsköpunar.
- Skapa ný og eftirsóknarverð störf í sjávarútvegi eða tengdum greinum.
- Auka virði og framlegð úr því hráefni sem berst í land á Vestfjörðum sem og ónýttum auðlindum.
Háskólaverkefnin geta verið á mörgum sviðum sem stuðla að aukinni þekkingu í sjávarútvegi og samfélagslegum áhrifum sjávarútvegs.
Markmiðið með háskólaverkefnunum er að:
- Hvetja til nýsköpunar.
- Skapa ný og eftirsóknarverð störf í sjávarútvegi eða tengdum greinum á Vestfjörðum.
- Afla þekkingar byggðum á vísindalegum grunni um sjávarbyggðir Vestfjarða.
Hér er opið fyrir masters- og doktorsnema að vinna að verkefnum í náttúru-, og tæknigreinum sem og í viðskipta – og félagsvísindum í tengslum við sjávarútveg. Það er því mjög breytt svið fræðigreina sem geta komið að þessum verkefnum.
Allar nánari upplýsingar: https://www.vestfirdir.is/is/verkefni/hafsjor-af-hugmyndum
Fyrirtækin sem standa að sjávarútvegsklasa Vestfjarða eru Drangur á Drangsnesi, Fiskvinnslan Íslandssaga á Suðureyri, Hólmadrangur á Hólmavík, Hraðfrystihúsið Gunnvör í Hnífsdal, Jakob Valgeir í Bolungavík, Kampi á Ísafirði, Klofningur á Suðureyri og Oddi hf á Patreksfirði. Verkefninu er ætlað að styrkja sjávarútveg á öllum Vestfjörðum með styrk til námsmanna, frumkvöðla og sprotafyrirtækja.
Verkefnið fékk styrk frá Uppbyggingarsjóði sem er hluti af Sóknaráæltun og er unnið í samstarfi við Vestfjarðastofu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.