16. ágúst 2016
Fréttir
Vegna óviðráðanlegra orsaka þarf að breyta staðsetningu og tíma Haustþings FV sem var áætlað að halda í Bjarnarfirði 2. og 3. september. Ný staðsetning verður í Félagsheimilinu á Hólmavík föstudaginn 9. og laugardaginn 10. september.
Þema þingsins verður stefnumótun og framtíðarsýn á grundvelli stefnumörkunar fyrir Fjórðungssamband Vestfirðinga
Dagskrá þingsins verður ákveðin þegar nær dregur þinginu og verður hún sett á vefslóðina
http://www.vestfirdir.is/fjordungsthing/haustthing_2016/# þegar hún verður tilbúin ásamt öðrum gögnum er varða þingið.
Miðað er við að þingið hefst með léttum hádegisverði og skráningu kl.11:30 og verður sett kl. 13.00 á föstudeginum 9. september.