Fara í efni

Íbúafundur á Bíldudal – samtal um framtíðina

Fréttir
Frá íbúafundi september 2013
Frá íbúafundi september 2013

Miðvikudagskvöldið, 2. apríl er boðið til opins íbúafundar á Bíldudal í tengslum við verkefnið „Bíldudalur – samtal um framtíðina“. 

 

Á fundinum verður farið yfir helstu skilaboð íbúaþings sem haldið var í lok september og sagt frá hvernig þeim verður fylgt eftir.  Verkefnisstjórnin, sem í sitja fulltrúar Vesturbyggðar, Fjórðungssambands Vestfirðinga, AtVest og íbúa, auk fulltrúa Byggðastofnunar, mun starfa í eitt ár og taka nokkur mál upp á sína arma eða beina inn í sínar stofnanir.  Verkefnisstjórnin hefur einnig fundað með þingmönnum Norðvesturkjördæmis og þannig komið málefnum Bíldudals á framfæri.  Yfir allt þetta verður farið á íbúafundinum. 

 

Í lok þingsins skrifuðu íbúar nöfn sín á þá málaflokka sem þeir vildu vinna að áfram.  Á fundinum verður spurt frétta, hvort fólk hefur hist og hvað er títt.  Þessi þáttur er ekki síður mikilvægur en allt það sem verkefnisstjórn og stofnanir geta gert. 

 

Bíldudalur er einn af fjórum stöðum þar sem Byggðastofnun stendur fyrir verkefnum undir yfirskriftinni „Brothættar byggðir“  og kjarni þeirra er sá að virkja frumkvæði íbúa til að móta sitt samfélag.  

 

Fundurinn verður haldinn í Baldurshaga og hefst kl. 20.

Vesturbyggð býður upp á kaffi og meðlæti.