Föstudaginn 21. febrúar n.k. munu Vestfjarðastofa og Vesturlandsstofa kynna nafn og merki nýrrar ferðamannaleiðar sem unnið er að þróun á. Leiðin hefur gengið undir vinnuheitinu Hringvegur 2 en ljóst er að það verður ekki endanlegt nafn leiðarinnar. Unnið hefur verið með ráðgjafafyrirtækinu Cohn & Wolfe og mun Ingvar Örn Ingvarsson kynna niðurstöðu vinnunnar. Díana Jóhannsdóttir frá Vestfjarðastofu mun einnig fara yfir næstu skref í vinnunni framundan.
Fundurinn verður á Ísafirði, en einnig verður hann sýndur á Hólmavík, Partrekstfirði og í Búðardal. Þar geta ferðaþjónar og aðrir hagsmunaaðilar komið saman ásamt verkefnastjórum Vestfjarða/Vesturlandsstofu og hlustað á kynninguna, eftir kynninguna verður opnað fyrir sameiginlegar umræður.
Fundirnir eru á föstudaginn 21. febrúar frá 13:00-15:00
Ísafjörður - Skrifstofa Vestfjarðastofu, Árnagata 2-3
Patreksfjörður - Ólafshús
Hólmavík - Hnyðja
Búðardalur – Stjórnsýsluhúsinu