11. mars 2013
Fréttir
Kynning á nýrri skipulagsreglugerð nr. 90/2013 á Ísafirði
Skipulagsstofnun og umhverfis- og auðlindaráðuneytið mun kynna nýja skipulagsreglugerð á Ísafirði Suðurgötu 12, miðvikudaginn 13. mars kl. 13-15.
Fundurinn verður einnig sendur út til Hólmavíkur og Patreksfjarðar.
- Hólmavík, Þróunarsetrið, Höfðagata 3
- Patreksfjörður, Þekkingarsetrið Skor, Aðalstræti 53
Á fundinum munu fulltrúar Skipulagsstofnunar og ráðuneytisins gera grein fyrir nýrri skipulagsreglugerð og svara fyrirspurnum.
Gert er ráð fyrir tveggja klukkustunda fundi fyrir kynningu og umræður og er fundurinn öllum opinn.
Nánari upplýsingar á vef Skipulagsstofnunar:
http://www.skipulagsstofnun.is/skipulags-og-byggingarmal/mal-i-kynningu/ny-skipulagsreglugerd/