08. október 2021
Fréttir
Kynningarfundir Byggðastofnunar og Vestfjarðastofu
Í næstu viku munu sérfræðingar á fyrirtækjasviði Byggðastofnunar og starfsmenn Vestfjarðastofu vera með kynningarfundi um lánamöguleika hjá Byggðastofnun.
Fundir verða haldnir,
- Mánudaginn 11. október kl. 12:00 - Hólmavík, Hnyðja
- Þriðjudaginn 12. október kl. 13:00 - Ísafirði - Vestfjarðastofu, Vestrahúsi
- Föstudaginn 15. október kl. 10:00 - Patreksfirði - Ólafshúsi
Frekari upplýsingar gefur Byggðastofnun, postur@byggdastofnun.is
Núverandi og nýir viðskiptavinir velkomnir til að ræða lánamöguleika hjá Byggðastofnun.