Fara í efni

Mannamót 2025

Fréttir

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna verða haldin 16. janúar 2025

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna er árleg ferðakaupstefna sem haldin er af Markaðsstofum landshlutanna.

Mannamót markaðsstofanna er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni.

Markmið og tilgangur viðburðarins er að skapa vettvang þar sem landsbyggðarfyrirtæki fá tækifæri til að kynna sína þjónustu og vöruframboð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismunandi landshlutar eru að bjóða uppá.

Allar nánari upplýsingar og skráning eru hér.

Mannmót hluti af Ferðaþjónustuvikunni

Dagarnir 14. – 16. janúar 2025 verða helgaðir ferðaþjónustu. Þá verður lögð áhersla á að auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustu og efla samstarf og fagmennsku í greininni með fróðlegri og skemmtilegri dagskrá undir merkjum Ferðaþjónustuvikunnar.

Aðstandendur Ferðaþjónustuvikunnar eru Markaðsstofur landshlutanna, Íslenski ferðaklasinn, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Íslandsstofa.

MANNAMÓT MARKAÐSSTOFA LANDSHLUTANNA 2025
Markaðsstofur landshlutanna, í samvinnu við Isavia og Norlandair, setja upp ferðakaupstefnuna Mannamót fyrir samstarfsfyrirtæki sín 16. janúar 2025. Viðburðurinn verður haldinn í Kórnum í Kópavogi.

Skoða á viðburðardagatali