Föstudaginn 18. febrúar 2011 efna Menningarhúsið Hof og Tónlistarskólinn á Akureyri til málþings um menningarmál, með áherslu á Norðurland. Frummælendur eru:
Dr. Bjarki Valtýsson, aðjúnkt við IT háskólann í Kaupmannahöfn
Íslensk menning árið 2050 - Hlutverk sveitarfélaga
Trond Wika, fiðluleikari/kennari
Tengslin á milli mennta- og menningarstofnana
Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdarstjóri Akureyrarstofu
Mósaíkmyndin Akureyri
Pétur Halldórsson, menningarviti
Akureyri á heimsmælikvarða - að hugsa hátt eða lágt í menningarlífinu
Dr. Margrét Sigrún Sigurðardóttir, lektor við viðskiptafræðideild HÍ og umsjónarmaður Rannsókarmiðstöðvar skapandi greina
Skapandi atvinnugreinar á Íslandi
Málþingið fer fram í Hömrum, 1. hæð, Hofi og stendur frá kl. 13:00-17:00. Nánari upplýsingar um dagskrá og frummælendur má finna á www.menningarhus.is. Fundarstjóri er Jón Hrólfur Sigurjónsson. Að erindum loknum verða pallborðsumræður. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir en skrá þarf þátttöku fyrir 17. febrúar nk. á netfangið larasoley@menningarhus.is.
Sama dag verður sýning tileinkuð Sigfúsi Halldórssyni opnuð á göngum Tónlistarskólans en sýningin kemur frá Tónlistarsafninu í Kópavogi.