Fara í efni

Menningarlandið 2013 - ráðstefna á Kirkjubæjarklaustri

Fréttir

Mennta- og menningarmálaráðuneyti, atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, og Menningarráð Suðurlands í samstarfi við önnur menningarráð landsbyggðarinnar boða til ráðstefnunnar Menningarlandið 2013 – framkvæmd og framtíð menningarsamninga, sem fram fer á Icelandair Hótel Klaustri dagana 11.-12. apríl 2013. Dagskrá og frekari upplýsingar má finna hér.

 

Megintilgangur ráðstefnunnar er að ræða framkvæmd og framtíð menningarsamninga ríkis og sveitarfélaga, sem og samstarf ríkis og sveitarfélaga við menningarráðin sem stofnuð hafa verið um land allt á undanförnum árum í kjölfar menningarsamninganna. Samningarnir, sem eru sjö talsins í jafnmörgum landshlutum, fela í sér markvissan stuðning ríkissjóðs við menningarstarf og menningarferðaþjónustu gegn mótframlagi sveitarfélaga og einkaaðila í héraði. Menningarsamningarnir renna allir út á þessu ári og því þarf að meta reynsluna af þeim til að geta gert áætlanir um framhaldið, m.a. með tilliti til sóknaráætlana landshluta.

 

Fyrir hverja? Allir þeir sem á einn eða annan hátt tengjast menningarstarfi og menningarferðaþjónustu á Íslandi eru hvattir til að taka dagana 11. og 12. apríl frá og mæta á ráðstefnuna, enda verða umræðurnar þar grundvöllur að frekara samstarfi ríkis og sveitarfélaga um menningarsamningana.

 

Ráðstefnugjald er 13.500 kr. Innifalið er hádegisverður og kaffiveitingar báða dagana og hátíðarkvöldverður (án drykkja) á fimmtudagskvöldinu. Ráðstefnan hefst um hádegi fimmtudaginn 11. apríl og lýkur síðdegis föstudaginn 12. apríl.

Skráningarfrestur er til og með föstudeginum 5. apríl og verða reikningar sendir út að skráningu lokinni. Reikninga skal greiða í síðasta lagi 10. apríl 2013.