Fara í efni

Menningarvefur opnaður

Fréttir
Fjórði bekkur ásamt Jóni Jónssyni menningarfulltrúa og Arnari S. Jónssyni formanni Menningarmálanefn…
Fjórði bekkur ásamt Jóni Jónssyni menningarfulltrúa og Arnari S. Jónssyni formanni Menningarmálanefndar Strandabyggðar og fulltrúa í stjórn Menningarráðs Vestfjarða, nýbúinn að opna nýja menningarvefinn og breyta þannig heiminum pínulítið.

Í morgun var nýr vefur Menningarráðs Vestfjarða opnaður formlega, hér á slóðinni www.vestfirskmenning.is. Á vefnum eru margvíslegar upplýsingar um menningarlíf á Vestfjörðum og starfsemi Menningarráðsins, fréttir af atburðum og tíðindi úr menningarlífinu, tenglar og upplýsingar um styrki Menningarráðsins ásamt vefformi með umsóknareyðublaði.
 
Það voru nemendur í 4. bekk Grunnskólans á Hólmavík sem aðstoðuðu Jón Jónsson menningarfulltrúa Vestfjarða við að opna vefinn á Héraðsbókasafni Strandasýslu í morgun, eftir að hafa hlýtt á pistil um nýsköpun og gildi einstaklingsframtaksins í menningarstarfi. Lagt var út frá því hvað hefði breyst til hins betra á Hólmavík og Ströndum frá því nemendurnir sjálfir komu í heiminn fyrir 9 árum. Í framhaldi af því ræddi hópurinn á hvaða sviðum menningar- og félagslífið gæti verið öflugra, hvar sóknarfærin lægju og hvernig nemendurnir sjálfir gætu breytt heiminum til hins betra þegar fram líða stundir ef aðrir verða ekki fyrri til. Að loknum umræðum var svo vefurinn opnaður við mikinn fögnuð.
 
Vefurinn vestfirskmenning.is er unninn í vefumsjónarkerfinu Snerpil sem veffyrirtækið Snerpa á Ísafirði á veg og vanda að. Útlitshönnun var í höndum Ágústs Atlasonar hjá Snerpu.