Fara í efni

Menntamálaráðuneyti auglýsir styrki úr tónlistarsjóði

Fréttir

Menntamálaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr tónlistarsjóði til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu janúar til ágúst 2008. Næst verður auglýst eftir umsóknum í maí 2008 vegna verkefna á síðari hluta ársins 2008. Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 19. nóvember 2007. Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Nánari upplýsingar um hlutverk sjóðsins, úthlutunarreglur, umsóknir og mat á þeim eru á vef mennamálaráðuneytis.

Við mat á umsóknum er m.a. tekið tillit til listræns gildis og mikilvægis verkefnis fyrir almenna tónlistarstarfsemi og eflingu íslenskrar tónlistar, gildi og mikilvægis verkefnis fyrir kynningu og markaðssetningu íslenskrar tónlistar, starfsferils, faglegs og/eða listræns bakgrunns umsækjanda og fjárhagsgrundvallar verkefnisins. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneyti eða á vef þess.