Fara í efni

Nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Arnarfjarðar – opinn kynningarfundur um tillögu

Fréttir

Kynningarfundur á tillögu að nýtingaráætlun strandsvæðis Arnarfjarðar verður haldinn í Vísindaporti Háskólaseturs Vestfjarða, föstudaginn 30. nóvember n.k. á milli kl 12.10 og 13. 


Tillagan verður send umsagnaraðilum nú í vikunni og auglýst opinberlega í framhaldi ef því, nánar tiltekið fyrri hluta janúarmánaðar 2013. Sambærilegur kynningarfundur verður á Bíldudal mánudaginn 3. desember kl 20.00, í Félagsheimilinu
Baldurshaga.

 

Tillagan er hluti af stærra verkefni sem kallast Nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Vestfjarða. Fjórðungssamband Vestfirðinga, Teiknistofan Eik og Háskólasetur Vestfjarða standa að verkefninu en formlegur undirbúningur þess hófst árið 2009.
Markmið þess er að skipuleggja strandsvæðin með svipuðum hætti og gert er á landi en á Íslandi nær skipulagsvald sveitarfélaga aðeins til lands, nánar tiltekið út að 115 m frá stórstraumsfjöruborði. Áætlunin er þannig yfirlýsing sveitarfélaganna um það hvernig þau vilja að strandsvæðin séu nýtt en er einnig samantekt á ýmsum forsendum fyrir ákvarðanatöku á strandsvæðinu. Nýtingaráætlunin á að vera  verkfæri fyrir sveitarstjórnir, leyfisveitendur og hagsmunaaðila til þess að bæta ákvarðanatöku. Henni er ætlað að stuðla að sjálfbærri nýtingu og þróun á svæðinu og efla það með sameiginlegri stefnumótun, er byggi á styrkleikum svæðisins og þeim auðlindum sem þar er að finna.

 

Frekari upplýsingar má finna hér á síðunni undir Nýtingaráætlun