Fara í efni

Opið fyrir styrki í Atvinnumál kvenna

Fréttir

Ertu með góða hugmynd?

Vinnumálastofnun/félags-og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna
árið 2025 lausa til umsóknar!

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 35.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 4.000.000.

Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

  • Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu. 
  • Verkefnið feli í sér nýnæmni eða nýsköpun af einhverju tagi.
  • Verkefnið feli í sé atvinnusköpun til frambúðar. 
  • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.
  • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), ásamt styrkjum til markaðssetningar og vöruþróunar að hármarki 4.000.000. Hægt er að sækja um styrk fyrir helmingi af kostnaði verkefnis, nema ef sótt er um styrk til gerðar viðskiptaáætlunar. 

Umsóknarfrestur er frá 7.febrúar til og með 14.mars og skal sækja um rafrænt á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is

Á heimasíðu verkefnisins má finna nánari upplýsingar um reglur og skilyrði sem þarf að uppfylla, sjá hér.

Þær sem fá samþykktan styrk til gerðar viðskiptaáætlunar munu fá tækifæri til að taka þátt í fyrirtækjasmiðju. Keppt verður um verðlaun fyrir bestu viðskiptahugmyndina en dómnefnd mun meta kynningar þátttakenda. Nánari tilhögun verður kynnt síðar.

Hægt er að bóka viðtal á heimasíðunni hjá verkefnastjóra sem gefur nánari upplýsingar.

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum!

https://www.facebook.com/atvinnumalkvenna

https://www.instagram.com/atvinnumalkvenna/