21. september 2022
Fréttir
Í Sóknaráætlun Vestfjarða er mikil áhersla lögð á hækkun menntunarstigs Vestfjarða og meðal áherslumála er gerð menntastefnu fyrir Vestfirði. Markmið verkefnisins er að greina stöðu, strauma og stefnur til að móta sameiginlega framtíðarsýn og aðgerðaáætlun um hvernig megi efla skólastarf frá leikskóla til háskóla.
Samfélagsbreytingar eru að verða á Vestfjörðum vegna bættra samgangna og breytinga í atvinnulífi. Takast þarf á við áskoranir vegna breytinga í samsetningu íbúa, fjölgunar íbúa af erlendum uppruna, vegna loftslagsbreytinga og breytinga sem tengjast fjórðu iðnbyltingunni. Skoða þarf strauma og stefnur í samhengi við sviðsmyndir um mögulega þróun atvinnulífs og mannlífs.
Verkefnið er samstarfsverkefni Vestfjarðastofu, Menntaskólans á Ísafirði, Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og Háskólaseturs Vestfjarða.
Haldnir verða opnir fundir á næstu dögum;
- Patreksfirði, mánudaginn 3. október kl 15:00, Safnaðarheimilinu á Patreksfirði
- Hólmvík, þriðjudaginn 4. október kl 14:00, Félagsheimilinu Hólmavík
- Ísafirði, miðvikudaginn 5. október kl 15:00, í sal Grunnskólans á Ísafirði
Öll þau sem hafa áhuga á menntamálum erum velkomin og hvött til að taka þátt.