Fara í efni

Samtal um framtíð og samvinnu í markaðssetningu. Fundi frestað á Ísafirði.

Fréttir

Íslandsstofa og Markaðsstofa Vestfjarða boða til samtals aðila í ferðaþjónustu og tengdra hagsmunaaðila. Á fundinum er ætlunin að ræða möguleika á að stilla enn frekar saman strengi í markaðssetningu landshluta og á landsvísu. Hvaða árangri viljum við ná í ferðaþjónustunni í framtíðinni og hvað er árangur í okkar huga? Hvernig getum við unnið betur saman og nýtt okkur þá markaðssetningu sem fer fram?

 

Á fundinum verða Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu, og Díana Jóhannsdóttir, Markaðsstofu Vestfjarða, sem mun stýra fundinum.

 

Fundarstaðir eru:


Tálknafjörður, 25 febrúar, kl. 13-16, Hópinu
Hólmavík, 26. febrúar, kl. 9-12, Café Riis
Ísafjörður, 26. febrúar, kl. 16-19, Hótel Ísafirði


Vonumst til þess að sjá sem flesta. Skráning fer fram hjá Díönu í netfangið: travel@westfjords.is.