Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í styrktarsjóð Hafna Ísafjarðarbæjar

Fréttir

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr styrktarsjóði Hafna Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2025.

Markmið með sjóðum er að styrkja og bæta bæjarbraginn og eru í ár 8 milljónir til úthlutunar. Sjóðurinn er að þessu sinni þrískiptur þar sem styrkja skal viðburðahald, samfélags- eða fegrunarverkefni sem efla samfélagið í Ísafjarðarbæ. Sjóðnum var komið á laggirnar í fyrrasumar og þá var aðeins viðburðahald styrkt, en nú er búið að útvíkka reglur sjóðsins og auka úthlutunarfé.

  • Viðburðir - Styrkjum er úthlutað til einstakra viðburða, eða raða viðburða sem haldnir eru í Ísafjarðarbæ árið 2025. Viðburðir mega fara fram á öllum tíma dags og öllum tímum árs. Ekki er krafa um að viðburðir séu þátttakendum að kostnaðarlausu en forgangs njóta ókeypis viðburðir. Ekki eru veittir styrkir til rekstrar‐, stofnkostnaðar‐ eða endurbóta fyrirtækjum þ.m.t. á eignum.
  • Fegrunarverkefni – Verkefni sem miða að fegrun og bættu umhverfi í Ísafjarðarbæ. T.d vegglist, umhverfislist, bættar merkingar húsa og fyrirtækja. Undir þetta fellur ekki almennt viðhald fasteigna.
  • Samfélagsverkefni – Uppbyggjandi og jákvæð verkefni sem nýtast samfélaginu. Styrkjunum er ætlað að styðja við framtak hópa og einstaklinga sem stuðla að farsæld, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi. Svo sem starfsemi opinna frjálsra félagasamtaka sem vinna í almannaþágu árið um kring.

Hægt er að sækja um styrk að hámarki 800.000 kr. Ekki er krafist mótframlags frá umsækjanda.

Umsóknarfrestur er til 4. apríl kl 16:00 og umsóknarform má finna hér

Nánari upplýsingar og ráðgjöf veitir Magnea Garðarsdóttir verkefnisstjóri á netfanginu magnea@vestfirdir.is