Fara í efni

Þjóðlagakvöld í Hömrum í kvöld

Fréttir

Í kvöld, miðvikudagskvöldið 2 .febrúar verða tónleikar í Hömrum undir yfirskriftinni „Eistneskt þjóðlagakvöld með myndaívafi". Á tónleikunum spila og syngja Leanne Barbo, Laura Barbo og Marju Varblane sem eru þessa dagana á kynnisferð um Ísland, en með þeim leika vinir þeirra, tónlistarhjónin Krista og Raivo Sildoja, sem búsett eru á Þingeyri. Leikið verður á ýmis þjóðarhljóðfæri Eistlendinga s.s. kannel, hiiu kannel. Torupill (sekkjapípa), parmupill (gyðingaharpa) og fiðlu. Þá verður myndum frá Eistlandi varpað á tjald. Tónleikarnir eru um klukkustund að lengd og aðgangseyririnn ( kr. 1.000 og kr 500 fyrir skólabörn) rennur í ferðasjóð tónlistarkvennanna.

Eistnesku tónlistarkonurnar Leanne Barbo og Marju Varblane hafa leikið þjóðlagatónlist og lagt stund á þjóðdansa síðustu 10 ár og nú eru þær á ferð um Ísland til að kynna sér íslenskar hefðir og jafnframt kynna hefðir sins lands. Þjóðlegur söngur, hljóðfæraleikur og dans eru afar ríkir þættir í eistneskri menningu og sjálfstæðisbarátta Eistlendinga á árunum 1987-1991 hefur oft verið kölluð „Byltingin syngjandi".