Fara í efni

Þjónustukönnun Byggðastofnunar: Hvaða þjónusta skiptir þig máli? 

Fréttir

▪ Hvaða þjónustu nota íbúar og hvert fara þeir til að sækja þá þjónustu?

▪ Hvaða þjónustu þarf helst að bæta við eða efla?

▪ Hvaða þjónustu óttast íbúar helst að missa úr heimabyggð?

Nú fer fram könnun sem Maskína framkvæmir fyrir hönd Byggðastofnunar meðal íbúa um land allt (utan höfuðborgarsvæðis) vegna rannsókna á þjónustusókn og væntingum til breytinga á þjónustu.

Könnunin er liður í að skilgreina þjónustusvæði og fá mynd af viðhorfum íbúa mismunandi svæða til breytinga á þjónustu. Út frá sjónarmiði byggðamála og landshlutanna er þátttaka íbúa í könnuninni mjög mikilvæg. Sérstaklega er mikilvægt að fá svörun úr dreifðum byggðum landsins svo unnt verði að vinna með niðurstöðurnar þannig að sem réttust mynd fáist einnig af þjónustusókn íbúa í fámennum byggðarlögum. Niðurstöður munu nýtast í vinnu við eflingu byggða um land allt.

Áætlað er að það taki um 10 mínútur að svara. Könnunin er á íslensku, ensku og pólsku. Smellið hér til að taka þátt.

Rafræn skilríki eru notuð við innskráningu til að tryggja áreiðanleika könnunarinnar en öllum persónulegum upplýsingum er eytt áður en úrvinnsla gagna hefst.