Púkinn, barnamenningarhátíð á Vestfjörðum, verður haldin dagana 31. mars til 11. apríl. Sem áður var leitað til ungmennaráðs Vestfjarða um þema og er það að þessu sinni vestfirskar þjóðsögur. Undirbúningur er kominn á fullt skrið og vonumst við til að hátíðin verði sem ánægjulegust fyrir börn um alla Vestfirði. Púkinn hlaut styrk frá Barnamenningarsjóði í síðustu úthlutun og í desember var opnað fyrir umsóknir um verkefnastyrki. Okkur hafa borist ábendingar um að umsóknarfresturinn hafi farið framhjá fólki og því ætlum við að framlengja umsóknarfrestinn til og með 23. janúar. Umsóknarformið er tiltölulega einfalt svo ef þið viljið sækja um styrk fyrir verkefnum hvetjum við ykkur til að gera svo eða ef þið vitið um einhverja sem myndu vilja koma með verkefni á hátíðina að hvetja þá til að senda inn umsókn. Öllum er heimilt að sækja um ef verkefnið er ætlað grunnskólabörnum og verkefnið fer fram á Vestfjörðum.
Það er metnaðarfullt verkefni að ætla að keyra hátíð sem er dreifð um alla Vestfirði og varðar svo stóran hóp sem öll börn á grunnskólaaldri. Mikilvægur liður í að vel takist til er að allir leggist saman á árarnar til að skapa góða hátíð. Þannig má tryggja hana í sessi og auka aðgengi vestfirskra barna að listum og menningu sem getur lifað með þeim um langa tíð.