Fara í efni

Undirrituðu samning um svæðisbundin farsældarráð

Fréttir Sóknaráætlun Vestfjarða

Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir og Jóhanna Ösp Einarsdóttir, fyrir hönd Vestfjarðastofu, undirrituðu í dag tímamótasamning við Ásmund Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, um svæðisbundin farsældarráð. Samningurinn var gerður við öll sjö landshlutasamtök sveitarfélaga hér á landi og fól hann í sér ráðningu verkefnisstjóra.

Viðkomandi verkefnisstjórar munu leiða undirbúning að stofnun svæðisbundins farsældarráðs í hverjum landshluta fyrir sig. Með samningunum hafa öll sveitarfélög landsins skuldbundið sig til þess að hefja vinnu við að hrinda 5. grein laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna í framkvæmd. Markmiðið er að börn og foreldrar geti fengið aðgang að samþættri þjónustu við hæfi, án hindrana. Verkefnisstjórar munu vinna í nánu samstarfi við forsvarsmenn innleiðingar farsældarþjónustu í sveitarfélögum landshlutans og leiða saman það fagfólk sem vinnur að málefnum barna í því skyni að undirbúa svæðisbundið farsældarráð. Samningurinn er gerður til tveggja ára og áætlað er að fyrir lok samningstímans hafi farsældarráð landshlutans verið kallað saman og undirbúningur vinnu við fyrstu áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða í þágu farsældar barna hafin.

Um er að ræða viðaukasamning við sóknaráætlanir landshluta. Samningurinn er byggður á niðurstöðum starfshóps mennta- og barnamálaráðuneytisins um samhæfða svæðaskipan í málefnum barna. Að mati starfshópsins voru mikil tækifæri fólgin í því að starfrækja farsældarráðin eftir gildandi landshlutaskiptingu sveitarfélaga enda þau vön að vinna á þeim grunni.

Ásmundur Einar sagði við undirritunina að einstaklega gott samstarf hefði verið við hluteigandi aðila um allt land sem komið hafa að lagasetningu um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og innleiðingu þeirra. Jafnframt að þessi samningur sé næsta skref í þeirri vegferð svo nýju farsældarsvæðin nái að virka eins og þau voru hugsuð þar sem að ólíkir aðilar vinna saman í hverjum og einum landshluta að því að bæta hag barna og ungmenna.