09. nóvember 2009
Fréttir
Háskólasetur Vestfjarða vinnur nú að úttekt á starfsemi Menningarráðs Vestfjarða og árangri sem styrkir þess hafa haft. Liður í þessari úttekt er almenn viðhorfskönnun á vefnum, en hún er bæði ætluð þeim sem koma beint að menningarmálum á Vestfjörðum og öðrum sem hafa áhuga á vestfirskum menningarmálum.
Könnunin er aðgengileg fram á miðnætti sunnudaginn 15. nóvember og er aðgengileg undir þessum tengli: http://www.hsvest.is/konnun_menningarrad/. Menningarráð hvetur fólk til að taka þátt og koma á framfæri viðhorfum sínum og skoðunum.