Tónlistarmiðstöð í samstarfi við Íslandsstofu stendur reglulega fyrir komu blaðamanna til landsins í tengslum við Iceland Airwaves, Reykjavík Jazz og Myrka músíkdaga. Nú kallar miðstöðin eftir umsóknum um samstarf frá öðrum hátíðum og hvetjum við sérstaklega hátíðir utan höfuðborgarsvæðisins til að sækja um.
Hvað styður Hátíðapotturinn?
Hátíðapotturinn er stuðningur fyrir íslenskar tónlistarhátíðir til þess að bjóða erlendum blaðamönnum til landsins með það að markmiði að koma íslenskum tónlistarhátíðum og tónlist á framfæri og efla alþjóðleg tengsl. Auk blaðamanna geta hátíðir einnig sótt um fyrir þátttöku listrænna stjórnenda eða annarra lykilaðila ef það þjónar því markmiði að koma íslenskri tónlistarmenningu á framfæri.
Hátíðarstuðningurinn er eftirfarandi:
- Flugferðir gesta til og frá landi (í almennu farrými)
- Gisting á meðan á hátíð stendur
- Ferðir innanlands ef hátíð er utan höfuðborgarsvæðisins
- Máltíðir eða sérstaka viðburði sem gestirnir taka þátt í
- Almannatengsl þar sem við á
- Utanumhald Tónlistarmiðstöðvar með komu gesta
Lykilatriði sem horft er til við mat á umsóknum:
- Að hátíðin sé með skýran fókus á íslenska tónlist
- Að hátíðin hafi nú þegar sannað sig og sé rekin á faglegan hátt
- Að hátíðin hafi skýrar áherslur
- Að hátíðin sé með heimasíðu og/eða kynningarefni á ensku ásamt fjölmiðlapakka sem má deila.
- Að markmið með komu erlendra gesta sé vel skilgreint og samræmist áherslum hátíðapottsins.
Við val á umsóknum er fjölbreytni höfð að leiðarljósi.
Hér má finna umsóknareyðublað og verður tekið við umsóknum til og með 25. mars 2025.
Frekari upplýsingar veitir:
Árni Hjörvar Árnason
Markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar