Fara í efni

Umsóknarfrestur - Eyrarrósin 2025

  • Eyrarrósin er nú veitt í nítjánda sinn
  • Auglýst er eftir tilnefningum um framúrskarandi menningarverkefni í landsbyggðunum
  • Þrenn hvatningarverðlaun veitt nýlegum verkefnum
  • Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair standa að Eyrarrósinni
  • Verndari Eyrarrósarinnar er hr. Björn Skúlason, maki forseta Íslands

Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair auglýsa nú í nítjánda sinn eftir umsóknum um Eyrarrósina, viðurkenningu sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni í landsbyggðunum. Horft er til þess að verkefnið hafi fest sig í sessi, verið starfrækt í yfir þrjú ár og hafi áhrif á menningarlíf á sínu landssvæði.

Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði hlaut Eyrarrósina árið 2023 en meðal fyrri verðlaunahafa má nefna Handbendi á Hvammstanga, Bræðsluna á Borgarfirði eystra, Skaftfell, Frystiklefann á Rifi, Aldrei fór ég suður, Ferska vinda í Garði, List í ljósi á Seyðisfirði og Skjaldborg á Patreksfirði.

Eyrarrósarhafinn hlýtur 2,5 milljón króna peningaverðlaun. Framleitt verður sérstakt myndband um verkefnið og því gefinn kostur á að standa að viðburði á aðaldagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2026.

Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar

Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar verða nú veitt í þriðja sinn til þriggja nýlegra verkefna sem sýna faglegan metnað bæði í rekstri og listrænni sýn. Hver hvatningarverðlaun eru 750 þúsund krónur.

Umsóknarfrestur um Eyrarrósina og hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar er til kl. 16:00 mánudaginn 24. mars.

Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag Eyrarrósarinnar og umsóknareyðublað má finna á vef Listahátíðar: www.listahatid.is/eyrarrosin

Nánari upplýsingar veitir:
Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík og formaður valnefndar, lara@artfest.is, s. 8670749