Fara í efni

Umsóknarfrestur - Starfsendurhæfing - Styrkir

VIRK auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem auka fjölbreytni og framboð úrræða í starfsendurhæfingu og styrki til rannsókna sem stuðla að uppbyggingu og auka við almenna þekkingu á starfsendurhæfingu á Íslandi.

Veittir eru styrkir til virkniúrræða, rannsóknarverkefna og uppbyggingar- og þróunarverkefna einu sinni á ári og þurfa umsóknir um styrkina að hafa borist sjóðnum fyrir lok dags 15. febrúar n.k. inn á netfangið styrkir@virk.is.

Sérstaklega verður horft til verkefna og/eða úrræða sem sniðin eru að þörfum einhverfra einstaklinga í styrkveitingum VIRK árið 2025.

Aðeins eru teknar til greina umsóknir sem uppfylla allar reglur um styrki VIRK. Nánari upplýsingar, stefnur og reglur varðandi umsóknir og umsóknareyðublöð má finna hér.

 

Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2025.