Fara í efni

Lokahóf ferðaþjónustunnar á Vestfjörðum

Fréttir

Fimmtudaginn 14. nóvember verður stendur Markaðsstofa Vestfjarða fyrir lokahófi ferðaþjónustunnar á Vestfjörðum, þar sem fagnað er að annasamasti tími ársins sé yfirstaðinn. Hófið er ætlað aðilum að Markaðsstofu Vestfjarða – sem eru fjölmargir ferðaþjónar á svæðinu og verður það haldið í Bryggjusal Edinborgarhússins frá klukkan 16:00-20:00.

Dagskráin felur í sér eftirfarandi erindi:

Sala og markaðssetning

Vetrarferðaþjónusta

Hvalaskoðun og gæði

Að því loknu verður boðið upp á drykki og léttar veitingar.

Skráning á viðburðinn er hér.

Ef þig langar að gerast aðili að Markaðsstofunni þá má finna upplýsingar um aðild hér og skráningarform er hér. 

Hlökkum til að sjá ykkur!

Markaðsstofa Vestfjarða

Skoða á viðburðardagatali