Háskólasetur Vestfjarða (HV) leitar að kraftmiklum einstaklingi í krefjandi starf forstöðumanns.
Forstöðumaður stýrir daglegri starfsemi og rekstri HV í umboði stjórnar. Forstöðumaður fer með fjármál og reikningshald, ræður starfsfólk og stýrir faglegri starfsemi. Forstöðumaður er virkur þáttakandi í stefnumótun HV með stjórn.
Leitað er að skapandi leiðtoga sem hefur eldmóð og brennur fyrir uppbyggingu akademískrar starfsemi HV og samfélagsins á Vestfjörðum. Starfsstöð er á Ísafirði og er búseta á Ísafirði eða nágrenni skilyrði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Fjármál og rekstur
- Stefnumótun og innleiðing hennar
- Mannauðsmál
- Fagleg forysta og áframhaldandi uppbygging náms og námssamfélags á háskólastigi á Vestfjörðum
- Samskipti við stjórnvöld og samfélag um málefni HV
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er áskilin. Kostur ef umsækjandi hefur
doktorsgráðu er tengist starfssviði forstöðumanns eða námsleiðum HV. - Haldgóð íslenskukunnátta er nauðsynleg ásamt færni í ensku, í ræðu og riti
- Reynsla af rekstri, stjórnun og mannauðsmálum
- Þekking á fagsviðum HV
- Framúrskarandi samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Þekking og reynsla af stjórnsýslu
- Þekking á og reynsla úr háskóla- og/eða alþjóðlegu rannsóknaumhverfi
- Hæfni til að byggja upp teymi og sterka liðsheild
Umsókn skal fylgja:
- Ítarleg ferilskrá
- Afrit af prófskírteinum
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir
hæfni umsækjanda í starfið og hugmyndum um framtíðarsýn fyrir HV - Tilnefning a.m.k. tveggja meðmælenda
Æskilegt er að nýr forstöðumaður geti hafið störf á haustmisseri 2025. Upplýsingar veita Peter Weiss, forstöðumaður (sími 450 3045 eða weiss@uw.is) og Elías Jónatansson, formaður stjórnar HV (sími 892-4461 eða eliasjonatansson@gmail.com).
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Umsóknir skulu sendar á umsokn@uw.is. Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2025