Við leitum að framsýnum, jákvæðum og drífandi einstaklingi í starf umsjónarmanns eigna við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði. Leitað er að einstaklingi með þekkingu og góða reynslu af sambærilegu starfi. Umsjónarmaður eigna heyrir undir framvæmdastjóra fjármála og rekstrar.
Á stofnuninni er lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð, umbætur í rekstri og ánægju starfsfólks. Hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 270 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef stofnunarinnar (www.hvest.is).
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Umsjón með eignum stofnunarinnar s.s. fasteignum, íbúðum á vegum stofnunarinnar, bifreiðum, tækjum og öðrum búnaði.
-
Umsjón með almennri umhirðu eigna og umhverfis í kringum þær.
-
Smærri lagfæringar og viðhald.
-
Upplýsingagjöf og yfirsýn yfir viðhaldsþörf.
-
Umsjón með sorphirðu innanhús og förgun.
-
Vöru- og póstflutningar til og frá HVest ásamt flutningum innanhúss.
-
Ábyrgð á eigin eldvörnum s.s rýmingaráætlun og almennum öryggismálum.
Hæfniskröfur
-
Iðnmenntun í tengdum greinum eða reynsla af sambærilegu starfi
-
Öryggisvitund og áhugi fyrir umbótarstarfi
-
Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
-
Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
-
Áreiðanleiki, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
-
Áhugi á þróun og uppbyggingu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
-
Íslenskukunnátta skilyrði
-
Almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum og umsögnum meðmælenda.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Elísabet Samúelsdóttir, elisabet.samuelsdottir@hvest.is
Sími: 4504500