Eitt af þeim 65 verkefnum sem hlutu styrk úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða árið 2020 er verkefnið Kalksalt sem hafði það að markmiði að koma með nýja vöru inn á markað. Verkefnið snerist um að fá ný mót til að framleiða minni saltsteina en áður höfðu verið í framleiðslu. Fór Kalksalt í þessa vöruþróun til að svara kalli viðskipavina sinna í hópi fjárbænda og hestamanna. Fyrirtækið Kalksalt ehf er lítið fjölskyldufyrirtæki staðsett á Flateyri í Önundarfirði. Núverandi eigendur hafa víðtæka reynslu af bústörfum og áhuga á umhverfismálum. Saltið sem þau nota í vöruna er sótt til fiskverkana á Vestfjörðum og þannig er kolefnisspori vörunnar haldið í lágmarki. Einnig er það ávinningur að saltið hafi verið notað í fiskvinnslu enda dregur saltið í sig prótein, vítamín og önnur snefilefni frá fiskinum sem nýtist svo búfénaðnum.
Framleiðslan dregur nafnið sitt af kalkþörungunum sem eru notaðir í vöruna. Þeir koma frá Kalkþörungaverksmiðunni á Bíldudal, en kalk hefur góð áhrif á vöxt beina, tanna, ullar og feld. Að auki kalksins eru í því selen, A-vítamín, E-vítamín og D3.
Á myndinni til hægri eru sýnishorn af saltsteinunum sem fóru í framleiðslu eftir að verkefnið sem hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða var klárað.
Það er óhætt að segja að fyrirtækið Kalksalt sé á fljúgandi siglingu og verður fróðlegt að fylgjast með því þróast og dafna á næstu árum. Vörur frá Kalksalti eru seldar um allt land í langflestum búvöruverslunum.