Fara í efni

Kynningarfundur vegna tillögu að landsskipulagsstefnu 2013 - 2024

Fréttir

Skipulagsstofnun mun í október og byrjun nóvember halda kynningarfundi víða um land þar sem kynnt verður tillaga að landsskipulagsstefnu 2013 – 2024 sem auglýst hefur verið samkvæmt 11. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fundað verður á Ísafirði 25. október kl. 13:00 í Bryggjusal Edingborgarhússins.

 

Á kynningarfundunum munu Stefán Thors og Einar Jónsson kynna:

 

  • Markmið og áhrif landsskipulagsstefnu og staða í skipulagskerfinu
  • Ferli landsskipulagsstefnu og samráð
  • Áherslur ráðherra fyrir gerð landsskipulagsstefnu
  • Helstu forsendur, sviðsmyndir og afmörkun stefnumótunar
  • Stefna
    • Skipulagsmál á miðhálendi Íslands
    • Búsetumynstur og dreifing byggðar
    • Skipulag á haf- og strandsvæðum
  • Umhverfismat landsskipulagsstefnu 2013-2024