Sögur og samfélag í ferðaþjónustu – áhrifaríkt markaðsefni
Fólk, sögur, minningar, stemming. Hvernig er hægt að nota sagnalist/storytelling á áhrifaríkan hátt sem hluta af markaðssetningu fyrir ákveðin svæði til ferðamanna sem leita að einstökum og eftirminnilegum upplifunum?
Áfangastaðurinn Vestfirðir býr yfir mögnuðum sögum og það sem gerir hann einstakan er samspil íbúa, samfélaga, náttúrunnar og menningar. Endalausar uppsprettur eru fyrir hendi og þú þarft bara ð setja þig í réttar stellingar til að breyta þessum hugmyndum í grípandi og eftirminnilegar sögur sem fanga athygli ferðamanna.
Húsið opnar kl.12:00. Boðið er upp á kaffi, meðlæti og tækifæri til tengsla. Öll eru velkomin á fundinn, en nauðsynlegt er að skrá sig hér.
Sölvi Guðmundsson, teymistjóri, markaður og menning hjá Markaðsstofu Vestfjarða
Haukur Sigurðsson, sérfræðingur á samfélagsmiðlum
Góðar móttökur, íslenskan og menningararfurinn
Sólveig Nikulásdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
Mikilvægi mynda og upplýsinga á sölusíðum
Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, CEO og stofnandi Keeps
Frásagnarlist í ferðaþjónustu
Auður Ösp Ólafsdóttir, markaðsklappstýra