Opinn fundur í samvinnu með Hæfnissetri ferðaþjónustunnar og Samtökum ferðaþjónustunnar verður haldinn mánudaginn 28. apríl á Vestfjarðastofu, Suðurgötu 12, Ísafirði kl.12-14
Sögur og samfélag í ferðaþjónustu – áhrifaríkt markaðsefni
Fólk, sögur, minningar, stemming. Hvernig er hægt að nota sagnalist/storytelling á áhrifaríkan hátt sem hluta af markaðssetningu fyrir ákveðin svæði til ferðamanna sem leita að einstökum og eftirminnilegum upplifunum?
Áfangastaðurinn Vestfirðir býr yfir mögnuðum sögum og það sem gerir hann einstakan er samspil íbúa, samfélaga, náttúrunnar og menningar. Endalausar uppsprettur eru fyrir hendi og þú þarft bara ð setja þig í réttar stellingar til að breyta þessum hugmyndum í grípandi og eftirminnilegar sögur sem fanga athygli ferðamanna.
Húsið opnar kl.12:00. Boðið er upp á kaffi, meðlæti og tækifæri til tengsla. Öll eru velkomin á fundinn, en nauðsynlegt er að skrá sig hér.
Fundarstjóri er Sölvi Guðmundsson
- Fundastjóri kynnir dagskrá
Sölvi Guðmundsson, teymistjóri, markaður og menning hjá Markaðsstofu Vestfjarða
- Sögur á samfélagsmiðlum
Haukur Sigurðsson, sérfræðingur á samfélagsmiðlum
- Styðjum starfsfólkið okkar
Góðar móttökur, íslenskan og menningararfurinn
Sólveig Nikulásdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
- Myndir segja meira en 1000 orð
Mikilvægi mynda og upplýsinga á sölusíðum
Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, CEO og stofnandi Keeps
- Frá staðreyndum í hrífandi upplifun
Frásagnarlist í ferðaþjónustu
Auður Ösp Ólafsdóttir, markaðsklappstýra