03. febrúar 2009
Fréttir
Trúbadorinn Svavar Knútur sem einnig syngur með hljómsveitinni Hraun, hélt stórgóða tónleika á Galdraloftinu á Galdrasafninu á Hólmavík á dögunum. Flutti hann lög af útkomnum plötum og einnig af væntanlegri plötu þar sem hamingjan verður í fyrirrúmi. Svavar Knútur kom svo við í skólanum á Hólmavík og skemmti grunnskólanemendum, áður en hann hélt áfram í Skagafjörðinn þar sem næstu tónleikar voru bókaðir í Auðunnarstofu á Hólum.
Fréttin er afrituð af www.strandir.is.