Umhverfislestin er farandsýning sem fór af stað á síðustu helgi á Hólmavík. Sýningin er mjög metnaðarfullt verkefni sem Vestfjarðastofa hefur staðið að og er styrkt af Sóknaráætlun Vestfjarða. Hönnuður sýningarinnar er Ásta Þórisdóttir en hún er listgreinakennari á Hólmavík. Sýningin er hluti af umhverfisvottun sveitarfélaganna, en þau hafa verið með vottun frá umhverfisvottunarsamtökunum EarthCheck frá árinu 2016.
Sýningin er hugsuð fyrir hinn almenna borgara og á að sýna á auðveldan hátt hvernig er hægt að breyta innkaupum og venjum til að minnka kolefnisfótspor heimilisins,
Á sýningunni er m.a boðið upp á hjólaviðgerðir og getur fólk komið með hjólið sitt til að láta laga. Hægt er að prufa rafbíl og einnig mismunandi rafmagnshjól, hægt er að sjá hvernig fjölnota pokar eru gerðir og versla í umbúðalausri búð sem veitingarstaðurinn Heimabyggð á Ísafirði er með. Fólk er hvatt til að koma með dollur eða annað til að versla í.
Fólk er hvatt til að koma með börnin á sýninguna því hún er barnvæn og skemmtileg.
Næsta sýning er í Félagsheimilinu á Patreksfirði fimmtudaginn 31. október frá kl. 16:00 til 17:00 og í Edinborgarhúsinu á Ísafirði laugardaginn 2. nóvember kl. 13:00 til 17:00