Framtíð Vestfjarða – Íbúafundur á Ísafirði
Vestfjarðastofa boðar til íbúafunda á Vestfjörðum þar sem fjallað verður um gerð svæðisskipulags fyrir Vestfirði og gerð Sóknaráætlunar Vestfjarða 2025-2029. Allir Vestfirðingar ungir sem aldnir – nýir sem gamlir eru hjartanlega velkomnir!
Á Ísafirði verður fundurinn haldinn í Edinborgarhúsinu miðvikudaginn 29. maí og hefst kl. 16:30.
Á fundinum mun Hrafnkell Proppé fjalla um gerð svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050, en þetta er í fyrsta sinn sem ráðist er í þá vinnu að gera sameiginlegt skipulag fyrir Vestfirði í heild sinni.
Hjörleifur Finnsson verður með stutt erindi um loftlags- og orkuskiptaáætlanir sem eru mikilvægur liður í þessari vinnu.
Héðinn Unnsteinsson og Herdís Sigurgrímsdóttir fjalla um gerð nýrrar sóknaráætlunar fyrir Vestfirði en hún er aðgerðaráætlun sem gerð er til fimm ára í senn. Í sóknaráætlun á hverjum tíma eru áherslur sem nýttar eru við úthlutun fjármagns
Hópavinna þar sem annarsvegar verður unnið með áherslur Sóknaráætlunar Vestfjarða 2025-2029 og hinsvegar með Framtíðarmyndir Vestfjarða 2050. Niðurstöður hópavinnu og umræðna verða nýttar við mótun framtíðarskipulags og aðgerðaáætlun fyrir Vestfirði.
Við hvetjum ykkur öll til að koma og taka þátt í þessari mikilvægu vinnu sem leggur drög að framtíðarskipulagi á Vestfjörðum í gegnum svæðisskipulagið og áherslum fyrir þau verkefni sem ákveðið verður að ráðast í næstu fimm árin í gegnum sóknaráætlun.
Gert er ráð fyrir að fundi ljúki klukkan 18:30 og þá verður öllum fundargestum boðið upp á grillaðar pylsur
Boðið verður upp á barnapössun á meðan á fundi stendur
Frekari upplýsingar hér
Svæðisskipulag er sameiginleg stefna tveggja eða fleiri sveitarfélaga um byggðaþróun og þá þætti landnotkunar sem talin er þörf á að samræma vegna sameiginlegra hagsmuna hlutaðeigandi sveitarfélaga. Svæðisskipulag er lögformlegt ferli sem tryggir aðkomu almennings og hagsmunaaðila, auk þess að vera ákveðin skuldbinding hlutaðeigandi sveitarfélaga.