Fara í efni

Kynning á styrkjamöguleikum Tækniþróunarsjóðs

Rannís heldur kynningarfund á Ísafirði þriðjudaginn 27. ágúst 2024 klukkan 12:00.

Atli Arnarson, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís, verður til viðtals og mun kynna styrkjamöguleika Tækniþróunarsjóðs:

Vöxt
Sprota
Fræ
Markað
Einkaleyfisstyrk og hagnýt rannsóknarverkefni.

Einnig verður komið inn á skattfrádrátt vegna rannsókna- og þróunarverkefna.

Það er eftir talsverðu að seilast fyrir vestfirsk fyrirtæki í nýsköpun og þróun á verkefnum í gegnum þessa styrkjasjóði og býður Atli upp á ráðgjöf til áhugasamra að fundi loknum.

Fundurinn verður haldinn á Vestfjarðastofu, Suðurgötu 12, 400 Ísafirði og hefst hann kl.12. Boðið verður upp á kaffi og kruðerí. Eigi áhugasamir ekki heimangengt geta þeir fylgst með kynningunni í gegnum streymi á Teams.