Fara í efni

Nýsköpun og fjárfestingar í ferðaþjónustu

DREIFUM VIÐ FÓLKI EÐA FJÁRFESTINGUM?

Ferðamálastofa og Íslenski ferðaklasinn bjóða til ráðstefnu með metnaðarfullri dagskrá um nýsköpun og fjárfestingar í ferðaþjónustu. Viðburðurinn er hluti af nýsköpunarvikunni 2024. Við skorum á alla sem tengjast ferðaþjónustu með einum eða öðrum hætti að mæta. 

Hvenær: 14.maí, kl 14:30 – 17:00 (gleðistund og netagerð að fundi loknum)

Hvar: Gróska - Stóri salur

Fyrir hverja: Fyrirtæki í ferðaþjónustu, tæknifyrirtæki í ferðaþjónustu, stuðningsumhverfi ferðaþjónustu, opinbera aðila, fjárfestar (innlenda og erlenda)

Viðburðurinn er samstarfsverkefni Ferðamálastofu og Ferðaklasans.

Dagskrá:

  1. Hluti - Fjárfesting í innviðum og opinber sókn

    Opnun - Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri
    Áherslur hins opinbera - Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála
    Erlendar fjárfestingar í ferðaþjónustu - Arnar Guðmundsson, Íslandsstofa

    2. Hluti - Fjárfesting í tækni og markaðslegir innviðir

    Frumtak og ferðatækni - Andri Heiðar Kristjánsson, Frumtak
    Gagnagull - Stefán Baxter, Snjallgögn
    Englafjárfestingar - Ragnhildur H. Magnúsdóttir, Nordic Ignite
    Fjárfesting í sjálfvirknivæðingu - Soffía Kristín Þórðardóttir, Paxflow

    3. Hluti - Hringferð um landið - hvar liggja tækifærin og hvers vegna?

    Inngangur - Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri
    Vesturland - Helga Margrét Friðriksdóttir, Landnámssetrið
    Vestfirðir – Friðjón Sigurðarson, Hóteluppbygging Hólmavík
    Norðurland - Kjartan Sigurðsson, Skógarböðin
    Austurland - Auður Vala Gunnarsdóttir, Blábjörg
    Suðurland - Brynjólfur Baldursson, Gróðurhúsið og uppbygging við Reykjadal
    Reykjavík - Helga Albertsdóttir, Sky Lagoon
    Reykjanes - Þorsteinn Þorsteinsson, Blue Car rental

Hringborðsumræður
Gleðstund og netagerð með léttum veitingum
Ráðstefnuslit

Ráðstefnan fer fram í Reykjavík en hægt er að vera með í streymi eða fá upptökur

Skráðu þig hér!